kvöldgöngur hefjast
Þriðjudagskvöld á Þingvöllum.
Ný gönguferðasyrpa að hefjast á þriðjudagskvöldum í þjóðgarðinum á Þingvöllum.
„Engar venjulegar bleikjur um þróun lífs í Þíngvallavatni”
Kvöldgöngur þjóðgarðsins á Þingvöllum hefjast þriðjudagskvöldið 8. júní en þá mun ný gönguferðasyrpa hefja göngu sína undir nafninu Þriðjudagskvöld á Þingvöllum.
Í þeim munu mismunandi fræðimenn fjalla um náttúru Þingvallasvæðisins. Fyrstur verður Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum sem fjallar um lífríki Þingvallavatns en titill göngunnar er „Engar venjulegar bleikjur - um þróun lífs í Þíngvallavatni”
Skúli ásamt öðrum hefur um langt árabil stundað rannsóknir á lífríki Þingvallavatns. Í gönguferðinni verður fjallað um lífríki Þingvallavatns með sérstakri áherslu á vistfræði og þróun bleikju og hornsílis. Gerð verður grein fyrir hvernig sérstök jarðfræði svæðisins og þróun lífríkisins spilar saman. Skúli mun velta fyrir sér nytja og verndunarsjónarmiðum og ræða á hvern hátt virðing og þekking skipta miklu máli í samskiptum okkar við náttúruverðmæti eins og Þingvallavatn.
Gönguferðin hefst í Vatnskoti kl. 20.00 og eru allir velkomnir - en vissara er að vera vel skóaður og búinn til útiveru.
Fimmtudagskvöldgöngurnar sívinsælu hefjast 10. júní næstkomandi og mun Dr. Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur og forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands fjalla um tónlistarflutning á Alþingishátíðinni 1930 í fyrstu gönguferðinni. Tónlistarflutningur á Alþingishátíðinni átti sér langann og mikinn aðdraganda sem stóð í nokkur ár. Á ýmsu gekk við framkvæmdina en hátíðarinnar verður minnst fyrir farsæla ákvörðun dómnefndarinnar sem birtist í Alþingishátíðarkantötu Páls Ísólfssonar. Gönguferðin hefst við fræðslumiðstöðina klukkan 20.00 og eru allir velkomnir.
Allar nánari upplýsingar um gönguferðirnar og dagskrá sumarsins er að finna á heimasíðu þjóðgarðsins www.thingvellir.is og í síma þjónustumiðstöðvar 482-2660.

