Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

9.6.2010

Vaskir sjálfboðaliðar vinna við stígagerð í þjóðgarðinum


Hópur erlendra sjálfboðaliða frá BTCV vinna nú við stígagerð í þjóðgarðinum.

Verkefnið sem hópurinn vinnur að er göngustígur frá Valhallarreitnum upp á gjábarminn við göngubrú niður íSjálfboðaliðar við vinnu sína Almannagjá.   Eftir að Hótel Valhöll brann opnaðist ný
leið niður Hallinn að þingstaðnum forna.  Áður en hótelið brann þá var stígurinn fáfarinn  vegna þess að hann lá inn í bakgarð hótelsins en nú fara mun fleiri stíginn og þarfnast hann verulegra endurbóta.

Sjálfboðaliðarnir koma frá nokkrum löndum Bandaríkjunum, Þýskalandi, Englandi og Frakklandi en sjálboðaliðar frá BTCV hafa unnið um áraraðir á Íslandi í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum.
 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf