Vöktun Þingvallavatns og helgistaðurinn Þingvellir í kvöldgöngum næstu viku.
I þriðjudagskvöldgöngu 15.júní mun Hilmar J. Malmquist líffræðingur og forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs fjalla um vistfræði vatnsins og líffræðilega sérstöðu þess með áherslu á verndunarmál. Athyglinni verður sérstaklega beint að vöktunarverkefni á vatnsgæðum
Þingvallavatns sem Þjóðgarðurinn á Þingvöllum, Orkuveita Reykjavíkur, Landsvirkjun og Umhverfisstofnun standa að. Einnig verður rætt um möguleika á skráningu náttúru Þingvallasvæðisins á heimsminjaskrá UNESCO. Gönguferðin hefst klukkan 20.00 í Vatnskoti og tekur um 2.klst.
Í fimmtudagskvöldgöngu að kvöldi þjóðhátíðardagsins 17.júni mun Kristófer Már KRistinsson leiðsögumaður ræða hugtakið helgistaður og tengja það við hugmyndir um friðlýsingu Þingvalla. Gönguferðin hefst við fræðslumiðstöðina klukkan 20.00 og tekur um 2 klst.

