Vöktun Þingvallavatns-Gagnaskýrsla 2009
Hér má finna gagnaskýrslu fyrir árið 2009 frá Náttúrufræðistofu Kópavogs. Árið 2009 var gagna aflað samtímis á þremur stöðvum úti í vatninu í maí, júlí, ágúst
og október. Að auki var gagna aflað á tveimur stöðvum við efra og neðra útfall vatnsins á tímabilinu mars–desember.
Framkvæmd verkefnisins gekk samkvæmt áætlun. Árið 2007 hófst vöktunarverkefni á lífríki og vatnsgæðum Þingvallavatns á vegum Umhverfisstofnunar, Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Um er að ræða árlega sýnatöku og mælingar og er vöktuninni skipt í þrjá meginverkþætti.
Náttúrufræðistofa Kópavogs hefur séð um verkþátt nr. 2 sem beinist að lífríki og efna- og eðlisþáttum í vatnsbolnum.

