Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

22.6.2010

Gengið um skóga á Þingvöllum

Í þriðjudagskvöldgöngu 22.júní mun Hreinn Óskarsson skógarvörður fara um skógarlundi í austanverðum þjóðgarðinum. Rætt verður um skógrækt á Þingvöllum og Birkikjarrstærstu samfelldu skógarlundir í þjóðgarðinum skoðaðir. Gönguferðin hefst í Vatnsviki klukkan 20.00.

Þar eru m.a. Vestur-Íslendinga reitur en reiturinn er í Hrafnagjárhallinum og var samþykktur af Þingvallanefnd árið 1952. Reiturinn er beggja vegna við gömlu þjóðleiðina yfir Hrafnagjá. Plantað í hann milli 1953 og 1958.

Stærsti einstaki skógarlundurinn innan þjóðgarðsins er Landsbankalundur en Landsbankinn gaf 100.000 krónur með því skilyrði að gróðursett yrði á Þingvöllum. Rúmlega 100.000 plöntur voru gróðursettar árið 1958 af ýmsum tegundum en mest af skógarfuru.

Þetta eru skógarlundir sem ekki margir skoða og en mjög fróðlegt að heimsækja.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf