Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

12.7.2010

Helladýr úr forneskju í þriðjudagskvöldgöngu

Í gönguferð þriðjudagskvöldið 13.júlí mun Bjarni Kristjánsson líffræðingur á Hólum fjalla um nýjasta undrið í Þingvallavatni. 

Árið 1998 fann Bjarni eina óþekkta marfló í Vatnsviki við norðurströnd Þingvallavatns. Síðar fundust fleiri og er hér um að ræða tvær nýjar tegundir marflóa.  Þessar tvær marflær, Crangonyx islandicus og Crymostygius thingvallensis, eru einstakar í sögu dýrafræði Íslands. Sérstaklega með tilliti til þess að líffræðilegur fjölbreytileiki er lítill á Íslandi.

Einlendar tegundir á Íslandi (tegundir sem finnast hér og hvergi annars staðar) eru nánast óþekktar, fáar tegundir búa hérlendis og breytileiki innan tegunda er almennt talinn frekar lítill. Einnig er dreifigeta grunnvatnsmarflóa afar takmörkuð, ólíklegt er að þær hafi borist yfir Atlantshafið og numið hér land. Þar að auki er stutt síðan Ísland var allt hulið jökli, u.þ.b. 10 þúsund ár eru frá lokum síðasta kuldaskeiði ísaldar.

Í göngutúrnum sem hefst við Vatnskot kl. 20:00 verður skyggnst í Þingvallavatn og rætt um lífríki þess með sérstaka áherslu á marflærnar og hvaða spurningar þessi uppgötvun hefur kveikt.  Gönguferðin tekur tæpar 2. klst og eru allir velkomnir.

 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf