Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

13.7.2010

Umferðartafir vegna malbikunar á Þingvallavegi dagana 13 og 14.júlí

Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að í dag þriðjudaginn 13. júlí og á morgun miðvikudaginn 14. júlí er fyrirhugað að vinna við malbikun á Þingvallavegi frá Skeggjastöðum að Hringvegi við Mosfellssveit. Malbikunin mun hefjast á milli kl. 8 og 9 og á henni að vera lokið síðdegis á fimmtudag. Þrengingar verða meðan á framkvæmd stendur og verður tímabundin truflun á umferð.

Framkvæmdir standa yfir við tvöföldun Hringvegar (1) í Mosfellsbæ, frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi.

Nokkuð víða er unnið að vegavinnu og yfirlögnum á slitlagi með tilheyrandi lausamöl og steinkasti. 

Vegagerðin beinir þeim tilmælum til vegfarenda að aka varlega um vinnusvæðin og virða merkingar um hámarkshraða.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf