Hvers virði eru Þingvellir?
Þingvellir hafa sérstaka stöðu í huga þjóðarinnar sem sögustaður og náttúruperla. En hve mikils virði eru Þingvellir?
Í fimmtudagskvöldgöngu 15.júlí mun Daði Már Kristófersson hagfræðingur og dósent í Hagfræðideild Háskóla Íslands reyna að svara þeirri spurningu.
Náttúra og umhverfi eru almennt uppspretta margvíslegra
verðmæta. Erfitt getur þó reynst að meta umfang þeirra í krónum og aurum enda eru engir markaðir til fyrir ýmsa þjónustu náttúrunnar. Skortur á mati á virði náttúrunnar getur leitt til þess að ákvarðanir eru teknar einungis á forsendum um hagnað af beinni nýtingu auðlinda, en ekkert tillit tekið til fjölþættra annarra verðmæta sem spillast við þá nýtingu. Meiri verðmætum getur þá verið fórnað fyrir minni.
Í gönguferðinni mun Daði Már fjalla um þær aðferðir sem hagfræðingar nota við mat á náttúrunni, hvenig þeim er beitt og hvaða hættur fylgja notkun þeirra.
Gönguferðin hefst við fræðslumiðstöðina við Hakið klukkan 20.00 og gengið verður um þingstaðinn forna og eru allir velkomnir.

