Hornsíli og hin úrelta stjórnarskrá í kvöldgöngum þjóðgarðsins.
Í þriðjudagskvöldgöngu þjóðgarðsins 20.júlí mun Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur beina athyglinni að minnstu fisktegund í vatninu en þó þeirri algengustu. Áætlað hefur verið að um 85 milljónir hornsíla séu í Þingvallavatni en staðfest er að þau greinast í tvö afbrigði. Meginbúsvæðið er
í tjarnarnálabreiðum sem ná niður á 25 metra dýpi en einnig hefur verið staðfest innst í Vatnsviki annað afbrigði sem er frábrugðið í útliti. Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir líffræðingur mun fjalla um rannsóknir sínar á hornsílum og hefst gangan í Vatnskoti klukkan 20.00
í fimmtudagskvöldgöngu 22.júlí mun Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík ræða um uppruna stjórnarskrár Íslendinga og aðstæður í samfélaginu þegar hún var samþykkt á Þingvöllum 17. júní 1944. Hann mun einnig ræða um hugmyndir um endurskoðun hennar og ástæður þess að illa hefur gengið í þeim efnum, þrátt fyrir góðan vilja margra að því er virðist.
Gönguferðin hefst klukkan 20.00 við fræðslumiðstöðina við Hakið og verður gengið um þingstaðinn forna.

