Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

21.7.2010

Ný salerni og verslunaraðstaða á Hakinu

Glöggir gestir á Hakinu á Þingvöllum hafa tekið eftir tveimur nýjum byggingum vestarlega við bílastæðið og verslun sem opnuð hefur verið í austurenda fræðslumiðstöðvar. Tvö salernishús hafa verið reist með 18 salernum. Nú hafa þegar 9 salerni verið tekin í notkun en þó á eftir að ljúka einföldum frágangi og þegar
líður á haustið verður seinna húsið opnað.   Þegar eru 6 salerni fyrir á Hakinu og með viðbótinni má búast við að biðraðir styttist umtalsvert á salernin.

Í austurenda fræðslumiðstöðvar hefur verið sett upp einfalt Aðstaða til sölu hefur verið komið upp í austurenda fræðslumiðstöðvarsöluborð með nokkrum vinsælum bókatitlum en einnig er þar selt vatn og opnað út úr húsinu til austurs.  Bókabúðin í þjónustumiðstöðinni hefur verið mjög vinsæl um árabil af gestum þjóðgarðsins þótt lítil sé enda hefur henni verið vel sinnt og metnaður lagður í val þeirra bóka sem þar er til sölu.  Söluhlutinn í austurenda fræðslumiðstöðvarinnar er hluti af verslun þjóðgarðsins og er vilji til að efla hana til að auka tekjur þjóðgarðsins. 

 



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf