Yfir 15.000 ferðamenn um Almannagjá á tæpri viku
Þingvellir eru einn fjölmennasti ferðamannastaður landsins en talningar hafa bent á að að milli 300-400 þúsund ferðamenn gangi niður Almannagjá á ári.
Hingað til hefur fjöldi ferðamanna verið áætlaður út frá
umferðartalningum Vegagerðarinnar á þjóðvegum í gegnum þjóðgarðinn og talningu inn í fræðslumiðstöðina.
Síðustu viku hefur starfsmaður á vegum þjóðgarðsins talið alla þá ferðamenn sem ganga um Almannagjá. Starfsmaðurinn er staðsettur efst í Almannagjá og telur alla þá sem fara niður gjánna eða kom upp úr gjánni. Fjöldinn er skráður niður á klukkustundarfresti en með því má sjá vel tímabundið álag. Helsti álagstíminn er á milli tíu og ellefu á morgnana og en á þeim tíma fóru einn morguninn yfir 800 ferðamenn niður Almannagjá.
Samtals fóru um 14.700 ferðamenn gengið um Almannagjá þá 6 virku daga sem nú hefur verið talið. Talningin hefur eingöngu farið fram virka daga milli 09.00 og 16.00 þannig að fjöldi ferðamanna er mun meiri en þessar tölur sýna.
Þessi talning á ferðamönnum í Almannagjá gefur góða mynd af þeim gríðarmikla fjölda sem heimsækir Þingvelli ár hvert. Talið verður fram í byrjun ágúst en tölurnar nýtast vel í áætlunum og starfi þjóðgarðsins.

