34.fundur heimsminjaráðsins haldin í Brasilíu
Fundur heimsminjaráðsins stendur nú sem hæst í Brasilíu höfuðborg Brasilíu.
Fyrir heimsminjaráðinu liggja 39 umsóknir frá 33 löndum um að fá staði skráði á heimsminjaskránna. Þar af eru 8 náttúruvætti, 29 menningarstaðir, og 2 blandaðir.
Heimsminjaráðið metur ástand 147 heimsminjasvæða þar á meðal 31 stað sem á skrá yfir heimsminjar í hættu. Nú þegar hefur heimsminjaráðið ákveðið að taka Galapagos eyjarnar af skrá yfir heimsminjar í hættu þar sem stjórnvöld brugðust hratt og rétt við ábendingum þeirra um úrbætur árið 2008.
Sem dæmi um þá staði sem nú bíða niðurstöðu heimsminjaráðsins er svæði suður af London sem Charles Darwin notaði þegar hann mótaði kenningar sínar um þróun tegundanna. Bikini rifið á Marshall eyjum í Kyrrahafi var vettvangur fyrstu tilrauna-kjarnorkusprenginga Bandaríkjamanna eftir seinni heimstyrjöldina eyjum og voru þar sprengdar 23 kjarnorkusprengjur fram til 1958. Yfirvöld á eyjunum hafa sótt um að Bikini rifið verði skráð á heimsminjaskrá.
Hægt er að kynna sér lista með þeim stöðum sem bíða niðurstöðu heimsminjaráðsins hér.
Í dag eru 890 svæði og staðir á heimsminjaskránni og má búast við að þegar fundi lýkur í Brasilíu að verði þeir komnir yfir 900.

