Unnið að endurbótum að Skógarhólum
Hestaflensan sem kom upp í íslenska hrossastofninum í vor hefur haft víðtæk á áhrif á alla þætti hestamennsku.
Vegna flensunnar hafa mjög fáir hestar og hestamenn komið við
í Skógarhólum í sumar sem um langt árabil hefur verið vinsæll áningarstaður hestamanna. Sumarið 2009 komu um 2600 hross í Skógarhóla en á þessu ári hafa tæplega 900 hross haft viðdvöl.
Guðmundur Einarsson staðarhaldari í Skógarhólum hefur þó nýtt tímann vel meðan færri hestar og menn hafa heimsótt staðinn og unnið að viðamiklum endurbótum á girðingum og annarri aðstöðu. Hann hefur notið aðstoðar sjálboðaliða og vinnuhópa á vegum Vinnumálastofnunar við að rífa upp girðingar sem voru ónothæfar og unnið að endurskipulagningu girðingarhólfa og annarri almennri snyrtingu á svæðinu.
Skógarhólar verða því í betra ástandi þegar hestar og eigendur þeirra heimsækja Þingvelli á næstu misserum.

