Sýning í Ráðhúsi Reykjavíkur á tillögum sem bárust í hugmyndaleit um þjóðgarðinn á Þingvöllum
Í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík stendur nú yfir sýning á tillögum sem bárust í hugmyndaleit Þingvallanefndar sem efnt var til í sumar um þjóðgarðinn á Þingvöllum.
Alls bárust 102 tillögur í hugmyndaleitinni frá 88 þátttakendum, en frestur til að skila inn tillögum rann út
22. ágúst. Óskað var eftir hugmyndum almennings um hvernig taka megi á móti þeim þúsundum Íslendinga og erlendra gesta sem á ári hverju vilja upplifa sérstöðu Þingvalla, án þess að ganga á tækifæri komandi kynslóða til að njóta staðarins.
Tillögurnar sem bárust eru mjög fjölbreyttar að innihaldi og framsetningu og komu frá fólki úr ólíkum áttum. Sýningin í Ráðhúsinu stendur til kl. 17:00 næst komandi sunnudag 23. október.
Dómnefnd sem falið var að leggja mat á tillögurnar hefur heimild til að veita allt að fimm 200 þúsund króna viðurkenningar fyrir þær hugmyndir sem hún telur áhugaverðastar. Nefndin hefur lokið störfum og verða niðurstöður hennar kynntar á blaðamannafundi í Ráðhúsinu kl. 15:00 næst komandi föstudag 21. október.
Fram að þeim tíma gefst almenningi kostur á að kynna sér tillögurnar og mynda sér sína eigin skoðun óháð niðurstöðum dómnefndar.
Laugardaginn 22. október kl. 13:30 verður efnt til hugmyndasmiðju í Ráðhúsinu. Þar verða niðurstöður hugmyndaleitarinnar ræddar og þess freistað að laða fram enn fleiri áhugaverðar hugmyndir um þróun þjóðgarðsins á Þingvöllum frá þeim sem höfðu ekki tök á að taka þátt í hugmyndaleitinni í sumar.
Allir sem eru áhugasamir um framtíð Þingvalla eru hvattir til að koma og kynna sér tillögurnar sem bárust í hugmyndaleitinni og að taka þátt í hugmyndasmiðjunni á laugardag.

