Vegna rjúpnaveiði á Þingvallasvæðinu
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum starfar á grundvelli laga nr. 47/2004. Mörk þjóðgarðsins skv. 1.gr laganna eru sem hér segir:
Að sunnan eru mörkin um línu sem dregin er úr
landamerkjum jarðanna Arnarfells og Mjóaness á Langatanga, vestur yfir vatnið og í Grjótnes sem er á landamerkjum jarðanna Skálabrekku og Kárastaða. Þaðan ráða landamerki þeirra jarða að landamerkjum Selkots og síðan landamerki Selkots og Kárastaða að sýslumörkum Árnessýslu og Kjósarsýslu á Há-Kili.
Þaðan ráða sýslumörk til norðausturs til upptaka Öxarár við Myrkavatn og í hátind Háusúlu og þaðan bein stefna til austurs í efsta tind Gatfells. Þaðan liggja mörkin til suðurs í Hrafnabjörg og með austur- og suðurmörkum jarðarinnar Gjábakka og með austurmörkum jarðarinnar Arnarfells í Langatanga.
Samkvæmt 11.grein reglugerðar nr. 848/2005 um þjóðgarðinn á Þingvöllum er öll skotveiði bönnuð innan marka þjóðgarðsins.
Hér má sækja hnitsett kort til að glöggva sig betur á mörkum þjóðgarðsins áður en lagt er af stað til fjalla.
Map Datum: WGS 84
Almennt má segja.
Til að komast á veiðislóð norðan við þjóðgarðinn þarf að fara nokkuð norður fyrir Sandkluftavatn. Fyrir austan þjóðgarð þarf að fara alveg austur að jeppaslóðanum upp að Hrafnabjörgum við Dímon/Tintron.
Nýverið var hluti gamla Gjábakkavegar við Gjábakka fjarlægður vegna breytinga eftir að nýr Lyngdalsheiðarvegur var opnaður. Þar af leiðandi er ekki hægt að aka austur gamla Gjábakkaveg við gatnamótin. Til að komast upp að Tintron, Bragabót og austur á Laugarvatnsvelli er bent á nýja tengingu við Kringlumýri og á Laugarvatnsvöllum miðja leið yfir á Laugarvatn á hinum nýja Lyngdalsheiðarvegi.
Vinsamlegast athugið að girðingin austan við Gjábakka eru EKKI mörk þjóðgarðsins.
Allt svæðið vestan Almannagjár, Skógarhólar, Gagnheiði, Svartagil, hlíðar Ármannsfells, Botnssúlna og Öxarárdalur er innan þjóðgarðs og því ekki veiðisvæði.

