Þingstaður í Skírisskógi í Englandi
Skírisskógur í Nottinghamshire í Englandi er best þekktur sem sögusvið hetjunnar Hróa Hattar sem stal frá þeim ríku og gaf þeim fátæku.
Skógurinn geymir einnig aðra sögu sem hefur verið hulin. Undanfarin ár hafa tveir íbúar svæðisins, sagnfræðingarnir og hjónin Lynda Mallett og Stuart Reddish unnið að rannsókn á mögulegum þingstað sem þau fundu eftir
að hafa komist yfir 200 ára gamlan uppdrátt sem sýndi skóginn og kennileiti þar. Ekki var vitað um þessar minjar sem komnar voru á kaf í skógarþykkni.
Hjónin hafa stofnað samtökin The Friends of Thynghowe sem miðla sögu rústanna og hafa fengið styrki til að rannsaka minjarnar. Nýlega fékkst styrkur til að gera ítarlega fjarsjárkönnun á svæðinu kringum rústirnar sem getur mögulega afhjúpað fleiri rústir. Á vef BBC er umfjöllun um verkefni þeirra.
Stuart Reddish og Lynda Mallett hafa setið nokkra fundi þingstaðaverkefnisins sem þjóðgarðurinn á Þingvöllum er aðili að. Þar hafa þau kynnt rannsóknir sínar og niðurstöður á fundum og sýna rannsóknir þeirra
að minjar um þingstaði eru til á fleiri stöðum en hingað til hefur verið talið.

