Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fréttasafn

21.2.2012

Málþing í Norræna húsinu um sögu samkeppna á vegum Arkitektafélags Íslands

Arkitektasamkeppni var fyrst haldin hér á landi fyrirÞingstaður réttum 85 árum og síðan þá hafa verið haldnar hátt á annað hundrað opnar samkeppnir.

Það kemur kannski ekki á óvart að Þingvellir voru fyrsta umfjöllunarefnið þegar fyrstu hugmyndir um samkeppni komu fram árið 1920.

Um þessar mundir eru liðin u.þ.b. 40 ár síðan niðurstaða lá fyrir í stórri hugmyndasamkeppni um skipulag Þingvalla, sem boðin var út í tilefni af því að tveim árum seinna, árið 1974, var haldið veglega upp á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar.

Í tilefni af þessum tímamótum heldur Arkitektafélag Íslands málþing í Norræna húsinu laugardaginn 25.febrúar þar sem fjallað verður um áhrif byggingarlistar á samfélagið. Að loknu málþinginu verður opnuð sýning um ýmsar samkeppnir sem haldnar hafa verið á vegum félagsins.

Meðal annars er fjallað ítarlega um hugmynda-samkeppnina frá 1972 um framtíðarnýtingu Þingvallasvæðisins.

Nánari upplýsingar um málþingið og sýninguna má finna hér á heimasíðu Arkitektafélags Íslands.



Til baka Senda grein Prenta greinina

 
 

 
 

 

Hliðarval



 
 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf