Fréttasafn
Ryðsveppur herjar á birki
Birkið ásamt víði, lyngi og fjalldrapa breyta ásýnd Þingvalla þegar haust tekur við af sumri. Margir koma til að njóta þeirrar litadýrðar sem við blasir. Í haust má búast við að haustlitir birkisins verði ekki jafn afgerandi einsog önnur haust þar sem borið hefur á ryðsvepp í birkinu undanfarinn mánuð. Ryðsveppurinn er sérhæfður sveppur og er lengi að vaxa inn í laufblöðunum en fer þó ekki í stofninn. Að lokum vex sveppurinn út úr yfirborði blaðsins og tekur að mynda gró. Þessi gró eru þessi rauðbrúni litur sem sést á blöðum þegar þau eru skoðuð nánar.
Við nánari skoðun má einnig oft sjá örsmáar lirfur sem njóta góðs af öllu saman og úða í sig sveppgróunum. Þegar frá líður verða blöðin síðan brúnleit og þá dettur tillífunin niður og laufblöðin falla. Áhrif sveppsins á vöxt og viðgang birkisins eru ekki mikil, þó er hugsanlegt að trjám sem verða hart úti sé hættara við kali. Ryðsveppurinn hefur verið til á Íslandi lengur en elstu menn muna þar sem hann fylgir birkinu og hefur væntanlega gert frá því birki nam hér land fyrir a.m.k. þúsundum ára.
Meiri líkur eru á ryðsvepp þegar sumur hafa verið löng og hlý og einnig tekur ryðsveppurinn við sér í blautum sumrum.

