Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Hvað er heimsminjaskrá UNESCO?

Hvað er heimsminjaskrá UNESCO?

Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um umhverfi mannsins, sem haldin var í Stokkhólmi árið 1972, viðurkenndu ríki nauðsyn verndunar þar sem „ það skaðar arfleifð allra þjóða heims ef einhver hluti hinnar menningarlegu eða náttúrulegu arfleifðar spillist eða hverfur“.

Á sama ári var á þingi Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) gerður Sáttmáli um verndun menningar- og náttúruminja heimsins. Hvatinn að því var ákall um að bjarga Abu Simbel (Egyptalandi), Feneyjum (Ítalíu), Moenjodaro (Pakistan) og Borobodur (Indónesíu).Feneyjar

Ef ekki hefði verið gert samstillt átak á alþjóðavettvangi hefðu þessar minjar glatast fyrir fullt og allt. Af þessu spratt hugmyndin um að öll ríki sem til þess væru reiðubúin deildu með sér ábyrgðinni á því að vernda helstu menningar- og náttúruminjar á jörðinni.

Samkomulagið grundvallast á þeirri forsendu að ákveðnir staðir á jörðinni hafi sérstakt alþjóðlegt gildi og eigi sem slíkir að tilheyra sameiginlegri arfleifð mannkynsins.

Þjóðirnar eða aðildarríkin, sem standa að samningnum, hafa sameinast í því verkefni að bera kennsl á og varðveita merkilegustu náttúru- og menningarminjar í heiminum. Aðildarríkin, sem standa að samningnum, virða að fullu fullveldi þjóða og forðast að skerða eignarrétt manna sem kveðið er á um í löggjöf viðkomandi þjóðar en líta svo á að alþjóðasamfélaginu í heild beri skylda til að vernda heimsminjar. Íslendingar gerðust aðilar að samningnum í desember árið 1995. Samningurinn er einstakur að því leyti að í honum eru náttúruvernd og friðun menningarminja tengd saman í einu skjali.

Menningarleg sjálfsmynd er nátengd náttúrunni sem hún þróast í.

Alveg eins og áhrifa frá náttúrulegu umhverfi gætir oft í skapandi verkum mannkynsins bera sumir stórfenglegustu staðirnir í náttúrunni ummerki mannlegra athafna í árþúsundir.

Til þess að fá samþykki á heimsminjaskrá þarf viðkomandi staður að vera einstakur í heiminum. Afmörkun hans þarf að vera skýr af hálfu viðkomandi ríkisstjórnar og full sátt þarf að ríkja um verndun, umsjón og rekstrarfyrirkomulag.

Staðir á heimsminjaskránni draga gjarnan að aukinn fjölda ferðamanna þannig að mikilvægi viðkomandi staða eykst í þjóðhagslegu tilliti. Heimsminjaskráin er talin vera afar öflugt tæki til minja- og náttúruverndar ekki síður en til uppbyggingar vandaðrar ferðaþjónustu í hverju landi.

 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf