Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Umsókn fyrir Þingvelli

Umsókn fyrir Þingvelli

Í desember 2001 var ákveðið af ríkisstjórn Íslands að stefna að tilnefningu merkustu staða Íslands á heimsminjaskrá UNESCO. Umsóknin um Þingvelli var lögð fram í febrúar 2003 og var hún samþykkt á fundi heimsminjaráðsins á fundi þess í Suzhou í Kína í júlí 2004

Í samráðsnefnd um skráningu á heimsminjaskrá voru Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, sem jafnframt var formaður nefndarinnar, Árni Bragason, sviðsstjóri í Umhverfisstofnun, Sigurður Ármann Þráinsson, deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu og Þorgeir Ólafsson, deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu. Í verkefnisstjórn um tilnefningu Þingvalla sátu Þorgeir Ólafsson formaður, Margrét Hallgrímsdóttir, Sigurður Oddsson, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, og Sólrún Jensdóttir, menntamálaráðuneytinu. Verkefnisstjóri og ritstjóri umsóknar var Halldóra Hreggviðsdóttir, jarð- og verkfræðingur hjá fyrirtækinu Alta. Auk þess komu fjölmargir sérfræðingar á ýmsum sviðum að umsókninni.

Í framhaldi af umsókninni samþykkkti Þingvallanefnd hinn 2. júní 2004 stefnumörkun næstu 20 ára fyrir þjóðgarðinn og einnig verkefnaáætlun. Verkefnisstjóri í vinnu vegna stefnumörkunnar var Guðrún St. Kristinsdóttir.

Pdf skjal: Umsókn Þingvalla v/heimsminjaskrár



 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf