Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Lífríki vatnsins

Lífríki vatnsins

Hin nánu tengsl á milli vistkerfis Þingvallavatns og jarðsögunnar skapa Þingvallavatni sérstöðu meðal vatna heimsins. Meirihluti vatnasviðsins er þakið hrauni og vatn neðanvatnshripar þar auðveldlega í gegn. Ungur aldur hraunanna gerir það að verkum að upptaka steinefna er mikil í grunnvatninu sem er ein af undirstöðum fjölbreytts lífríkis í Þingvallavatni.

Vegna landsigs og hrauns skapast fjölbreytni í búsvæðum, til dæmis fylgsni fyrir fiska í gjám og gjótum með strandlengju Þingvallavatns. Þingvallavatn er sérstaklega frjótt og gróðursælt þó svo að það sé mjög kalt. Um þriðji hluti botnsins er þakinn gróðri og magn þörunga er mikið.

Grimmur á svipLággróður nær út á 10 metra dýpi en hágróður myndar stór gróðurbelti á 10-30 metra dýpi. Um 150  tegundir jurta og 50 tegundir smádýra beita sér á þennan gróður, frá fjöruborði og út á mikið dýpi. Í fjöruborðinu lifa 120 þús. dýr á hverjum m2 en á 114m. dýpi lifa um 10 þúsund.  

Ein nýjasta tegundin sem hefur uppgötvast í Þingvallavatni er náhvít og blind marfló.  Hún hefur lifað í grunnvatni í hellum í milljónir ára og staðið af sér ísaldir og eldsumbrot. 

 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf