Stórhátíđir
Stórhátíđir
Frá ţví ađ Alţingi var lagt niđur á Ţingvöllum 1798 hafa Íslendingar haldiđ sex miklar hátíđir á Ţingvöllum. Áriđ 1874 var ţjóđhátíđ haldin á Ţingvöllum til ađ fagna 1000 ára afmćlis Íslandsbyggđar. Af ţví tilefni afhenti Kristján IX. Íslendingum fyrstu stjórnarskrána en samkvćmt henni fékk Alţingi takmarkađ löggjafararvald og fjárforrćđi. Íslendingar fjölmenntu til Ţingvalla til ađ verđa vitni ađ atburđi sem markađi ţáttaskil í sjálfstćđisbaráttunni.
Sumariđ 1930 var haldin stórhátíđ á Ţingvöllum til ađ minnast ţess ađ 1000 ár vćru liđin frá stofnun Alţingis. Alţingshátíđin var fyrsta allsherjarhátíđ Íslendinga ţar sem um verulega ţátttöku landsmanna var ađ rćđa en taliđ er ađ um 30-40000 manns hafi sótt hátíđina. Ţótti hún takast mjög vel og vera gestum og ađstandendum til mikils sóma.
Stofnun lýđveldis á Íslandi fór fram á Ţingvöllum á fćđingardegi Jóns Sigurđssonar forseta, 17.júní 1944. Mikill mannfjöldi var saman kominn á Völlunum viđ Öxará ţrátt fyrir rigningu og rok lengi dags.
Gestir létu ţó ekki rigninguna á sig fá enda dagurinn einn sá mikilvćgasti í sögu Íslands. Á Lögbergi fór fram forsetakjör ţar sem Sveinn Björnsson ríkisstjóri var kjörinn forseti.
Ađ lokinni dagskrá ađ Lögbergi var fyrsti ríkisráđsfundur lýđveldisins haldinn ţar sem forseti stađfesti m.a. lög um ţjóđfána og skjaldarmerki.
Áriđ 1974 var ellefu hundruđ ára afmćlis Íslandsbyggđar fagnađ á Ţingvöllum. Sólin skein glatt á gesti sem fjölmenntu á Ţingvöll og tóku ţátt í fyrstu hátíđ sem var sjónvarpađ beint til allra landsmanna.
Ţann 17. júní áriđ 1994 var minnst hálfrar aldar afmćlis lýđveldis á Íslandi á Ţingvöllum. Tugir ţúsunda Íslendinga fögnuđu ţessum tímamótum og fjöldi bođsgesta kom erlendis frá. Undirbúningur dagskrárliđa var mikill og vandađur. Konur sem skörtuđu íslenska ţjóđbúningnum og kórsöngur 1000 barna á hátíđarsviđinu voru međal ţess sem glöddu augu og eyru gesta ţennan hátíđardag.
Voriđ 1999 var sett kristnihátíđ á Íslandi sem markađi röđ atburđa um land allt sem minntust kristnitökunnar áriđ 1000. Hápunktur hátíđarhaldanna var tveggja daga hátíđ á Ţingvöllum í byrjun júlí sumariđ 2000 ţar sem ţúsundir Íslendinga komu og tóku ţátt í margvíslegri dagskrá og helgihaldi.

