Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Þingstaðaverkefnið 2009-2012

Þingstaðaverkefnið 2009 - 2012

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er meðal 8 aðila af stóru verkefni sem hefur verið samþykkt af Norðurslóðaáætlun ÞingstaðaverkefniðEvrópusambandsins (NPP). Meginmarkmið Norðurslóðaáætlunar 2007 – 2013 er að efla atvinnu- efnahags- og félagslega samvinnu svæða og landa á norðurslóðum með samstarfsverkefnum yfir landamæri á milli einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Byggðastofnun er umsjónaraðili með framkvæmd Norðurslóðaáætlunarinnar á Íslandi.

Markmið með verkefninu er að kynna sögu þingstaða frá Þingvöllur á Hjaltlandseyjumvíkingatímanum. Aðilar að verkefninu eru frá Skotlandi, Orkneyjum, Hjaltlandseyjum, Færeyjum, Noregi og eyjunni Mön. Nafn verkefnisins er: The THING Project - Thing Site International Networking Group og er heildarverkefnaáætlunin upp á tæplega 1. milljón evra. Grunnhugmynd verkefnisins er að efla og auka þekkingu á sögu þingstaða, hvernig hægt er að kynna hana og hvernig megi efla ferðaþjónustu tengda þessum stöðum. Verkefnið byggir á þeim þingstöðum sem kunnir eru frá víkingatímanum og eru dreifðir um þau landssvæði sem víkingar námu og byggðu.

Í Skotlandi er Dingwall þekkt örnefni á tveimur stöðum og á eyjunni Mön í Írlandshafi eru lög enn sögð við hátíðlega athöfn hverÞúsaldarminnismerkið í Gulaþingit sumar á stað sem heitir Tynwall. Í Færeyjum stendur stjórnarsetur eyjanna á Tinganesi þeim stað í Þórshöfn, þar sem þing voru háð um aldir.  Í Orkneyjum og Hjaltlandseyjum eru örnefni og sagnir um forna þingstaði.  Lög Gulaþings eru sögð fyrirmynd fyrstu laga á Alþingi Íslendinga á Þingvöllum árið 930.   Talið er að Gulaþing hafi verið í bænum Eyvindvik nyrst í sveitarfélaginu Gulen norðan við Bergen á vesturströnd Noregs.

Þingstaðaverkefnið  opnar á tengingar milli þeirra landa þar sem þingstaðir voru og skapar möguleika til að draga fram sögu héraðsþingstaða á Íslandi, kynna þá og þróa fjölbreyttari ferðaþjónustu í tengslum við þá.

Hér má finna heimasíðu verkefnisins en einnig er það kynnt á facebook síðu með slóðinni Thing Project 2009-2012 

 
 

 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf