Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Umhverfisstefna

Umhverfisstefna þjóðgarðsins á Þingvöllum

Umhverfisstefna í rekstri þjóðgarðsins á Þingvöllum er samþykkt af Þingvallanefnd í þeim tilgangi að tryggja að innra starf þjóðgarðsins sé í sem bestu samræmi við stefnumótun þjóðgarðsins 2004-2024 og ábyrga umgengni við umhverfið almennt.

Mótun umhverfisstefnunnar tekur mið af eðli og umfangi Mynd af blómiþeirrar starfsemi sem fer fram innan þjóðgarðsins og þeim umhverfisáhrifum sem starfsemin getur haft í för með sér, með hliðsjón af nauðsyn sjálfbærrar þróunar. Umhverfisstefna fyrir rekstur þjóðgarðsins hefur verið mótuð á grundvelli greiningar sem fyrir liggur á starfseminni og helstu umhverfisþáttum sem henni tengjast.

Umhverfisstefna fyrir rekstur þjóðgarðsins er viðbót við og nánari útfærsla á fyrirliggjandi stefnumótun þjóðgarðsins á Þingvöllum 2004-2024. Í stefnumótun þjóðgarðsins 2004-2024 er sett fram framtíðarsýn og stefna sem snýr einna helst að verndarsjónarmiðum þjóðgarðsins en umhverfisstefna í rekstri snýr að þáttum sem tengjast daglegum rekstri.

Umhverfisstefna pdf.skjal



 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf