Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Fræðslumiðstöð

Fræðslumiðstöð

Fræðslumiðstöðin er rétt við útsýnisskífuna á Hakinu, þar sem gengið er niður í Almannagjá.

Sýningin í fræðslumiðstöðinni er sú fyrsta hér á landi sem byggist nær eingöngu á margmiðlun. Hún er því mjög nútímaleg að allri uppbyggingu en engu að síður afar Fræðslumiðstöðinaðgengileg fyrir gesti.

Sögu og náttúru Þingvallasvæðsins er gerð góð skil á stórum sjónvarpsskjám, þar sem brugðið er upp fjölbreyttu og forvitnilegu myndefni. Gestir sýningarinnar geta valið um þulartexta/skjátexta á fjórum tungumálum (íslensku, dönsku, ensku og þýsku) og stýra því sjálfir frá snertiskjám hvaða efnisatriði þeir skoða og í hvaða röð.  

Reikna má með að það taki um 40 mínútur að fara í gegnum allt margmiðlunarefnið á skjánum, en gestir geta stýrt því sjálfir hvaða kafla þeir skoða. Hverjum kafla margmiðlunarsýningarinnar er ætlað að veita hinum almenna gesti þjóðgarðsins fróðlegar og gagnlegar upplýsingar um viðkomandi efnisatriði.

Sýningin er opin daglega frá 1.apríl til 1.nóvember frá 09:00-16:00 og er aðgangur að sýningunni ókeypis.

 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf