Hestamennska
Hestamennska
Þingvallasvæðið hefur um aldir verið viðkomustaður þeirra sem fara ríðandi um landið. Á Þingvöllum greinast leiðir um Uxahryggi og Kaldadal í uppsveitir Borgarfjarðar og svo austur um sveitir Suðurlands. Í Skógarhólum hefur um árabil verið rekin áningarstaður hestamanna.
Tvær reiðleiðir hafa verið skilgreindar innan og í gegnum
þjóðgarðinn sem hestamenn nýta sér. Er það leiðin frá Gjábakka yfir Hrafnagjá að Skógarkoti um Skógarkotsgötu. Þaðan má velja um tvær leiðir áfram til Skógarhóla.
Önnur leiðin liggur áfram um Skógarkotsgötu, Stekkjargjá og Langastíg. Hin leiðin liggur til norðurs í Hrauntún og áfram upp Sandskeið að Ármannsfelli þar sem farið er með þjóðgarðsgirðingunni til vesturs að Skógarhólum.
Þessar leiðir eru sérstaklega fallegar og eru hestamenn hvattir til að nota þær. Umferð bíla er mjög hröð í þjóðgarðinum, mikið er um blindbeygjur og því eiga hestamenn að nota reiðvegi þar sem annað skapar mikla slysahættu.
Umferð hestamanna um þinghelgina og Almannagjá er bönnuð til að forða árekstrum milli gangandi og ríðandi umferðar.
Hægt er að hafa samband við Guðmund Einarsson staðarhaldara í Skógarhólum til að fá upplýsingar um hagagöngu og aðstöðu í Skógarhólum. Netfangið er krossrofi@simnet.is og gsm sími hans er 8638755.

