Köfun
Köfun
Innan þjóðgarðsins er eingöngu leyfð köfun í tveimur gjám, Silfru og Davíðsgjá. Silfra er einn besti köfunarstaður á Íslandi og af mörgum talinn vera á heimsmælikvarða. Ástæðan er mikið skyggni í tæru grunnvatninu og stórfenglegt umhverfi Silfru.
Austar í þjóðgarðinum er Davíðsgjá. Gjáin er úti í vatni og þarf að synda nokkuð til að komast að henni. Gjáin er grunn nær landi en opnast eftir því sem farið er lengra út.
Kafarar verða að uppfylla reglur og skilyrði um búnað og réttindi til köfunar. Kafarar verða að hlíta öllum reglum um köfun og virða reglur um umgengni innan þjóðgarðsins.
Ekki er leyft að kafa einsamall, stunda hellaköfun eða fara dýpra en 30 metra. Kafarar kafa alfarið á eigin ábyrgð og áhættu.

