Þingvallanefnd, starfsmenn og fundargerðir
Þingvallanefnd og starfsmenn
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum varð til þegar svæðið var friðlýst með sérstökum lögum, sem samþykkt voru á Alþingi 7. maí 1928. Í lögunum segir að Þingvellir við Öxará og nágrenni þeirra skuli frá ársbyrjun 1930 vera „friðlýstur helgistaður allra Íslendinga“. Hið friðhelga land markast samkvæmt lögunum af Almannagjá í vestri og Hlíðargjá og Hrafnagjá í austri, en í suðri er miðað við línu frá hæstu brún Arnarfells beina stefnu á Kárastaði og í norðri frá Ármannsfelli þvert austur yfir hraunið að Hlíðargjá.
Þingvallanefnd fer með yfirstjórn þjóðgarðsins, fyrir hönd Alþingis. Nefndina skipa í dag alþingismennirnir,
Aðalmenn: Álfheiður Ingadóttir formaður, Björgvin G. Sigurðsson varaformaður, Ragnheiður E. Árnadóttir, , Valgerður Bjarnadóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Þuríður Backman, Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Varamenn: Oddný G. Harðardóttir, Jón Gunnarsson, Atli Gíslason, Helgi Hjörvar, Vigdís Hauksdóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Árni Johnsen.
Þingvallanefnd ræður þjóðgarðsvörð, sem annast daglegan rekstur og ræður annað starfsfólk.
Þjóðgarðsvörður er Ólafur Örn Haraldsson, fræðslufulltrúi þjóðgarðsins er Einar Á.E. Sæmundsen, yfirlandvörður er Guðrún S. Kristinsdóttir og ritari er Hrefna Vilborg Jónsdóttir. Yfir sumarmánuðina starfa auk þess tíu landverðir í þjóðgarðinum.

