Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Þjónustumiðstöð

Þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins er á Leirum

Þjónustumiðstöð Þjóðgarðsins er á Leirum. Opið er frá 1. maí - 30. september. Í miðstöðinni geta ferðalangar nálgast allar almennar upplýsingar um þjóðgarðinn frá landvörðum. Einnig er hægt að fá upplýsingar um færð og ástand vega, þjónustu í nágrenninu og helstu ferðamannastaði.

Góð landakort af Þingvallasvæðinu liggja frammi ásamt sérkortum af þjóðgarðinum og gönguleiðum um hann. Þá er þar ýmislegt lesefni s.s. fugla- og plöntuhandbækur sem gestir geta gluggað í sér til fróðleiks og skemmtunar.

Landverðir veita upplýsingar um tjaldsvæði og veiðistaði innan þjóðgarðsins og í miðstöðinni er einnig tekið við gistigjöldum og greiðslu fyrir veiðileyfi og köfun.

Yfir sumarmánuðina gengst þjóðgarðurinn fyrir skipulagðri dagskrá um hverja helgi. Upplýsingar um dagskrána eða einstaka liði hennar eru veittar í þjónustumiðstöðinni.

Í þjónustumiðstöðinni er lítil ferðamannaverslun, þar fást m.a. bækur, íslenskar og erlendar, póstkort, landbréf og þess háttar. Þá er þar einnig söluskáli þar sem gestir og gangandi geta keypt sér hressingu. Söluskálinn er opinn alla daga frá 1. febrúar til 15. nóvember en einungis um helgar seinni hluta nóvember, desember og janúar.

Afgreiðsla þjóðgarðs:
Sími: 482 2660
Fax: 482 3635
Netfang: thingvellir@thingvellir.is

Póstfang:
Þjónustumiðstöðin
Þingvöllum
801 Selfoss
Iceland

Söluskáli:
Sími: 482 3606

 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf