Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Tjaldsvæði

Tjaldsvæði

Tjaldsvæði

Leyfilegt er að tjalda á tveimur svæðum innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. Á Leirum í kringum þjónustumiðstöð og í Vatnskoti. Tjaldstæðin eru opin frá 1.júní til 1.september.

Sömu reglur um umgengni gilda á tjaldsvæðum þjóðgarðsins og hvarvetna innan hans. Tjaldgestum skal þó sérstaklega bent á að sýna tillitsemi og virða næturró með því að ganga hljóðlega um á milli kl. 24:00 og 08:00.

Gistigjöld;

Fullorðnir (13-67 ára) kr. 1000 hver nótt

Elli- og örorkulífeyrisþegar kr. 500 hver nótt

Börn í fylgd með fullorðnum greiða ekki gistigjald. Ef greitt er fyrir þrjár nætur, fæst sú fjórða frí og síðan önnur hver upp frá því. Hópar (10 fullorðnir eða fleiri) fá 15% afslátt sé gert upp sameiginlega. Gistigjald skal greiða fyrirfram í þjónustumiðstöð.

Tjaldsvæðin eru slegin vikulega og snyrtingar þrifnar daglega og oftar ef þurfa þykir. Sorp er látið óflokkað í sorptunnur en tjaldgestum er bent á að sérstakar tunnur eru ætlaðar undir einnota drykkjarílát og notuð grillkol.

Daglegt eftirlit með tjaldsvæðunum er i höndum landvarða sem einnig sinna næturvörslu um helgar. Ef eitthvað ber út af er gestum vinsamlega bent á að snúa sér til þeirra. Einnig skal landvörðum gert aðvart ef misbrestur á umgengni fólks veldur ónæði.

Á Leirunum skiptast tjaldsvæðin í fjóra hluta sem kallaðir eru Fagrabrekka, Syðri-Leirar, Hvannabrekka og Nyrðri-Leirar. Tjaldsvæðið í Vatnskoti er við gamalt eyðibýli á bökkum Þingvallavatns.

 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf