Fagrabrekka
Fagrabrekka
Fremur lítið tjaldsvæði en skjólgott einkum í norðan- og vestanátt. Þar er snyrtihús með vatnssalernum, vöskum og köldu rennandi vatni. Í Fögrubrekku er einnig stórt útigrill til afnota fyrir gesti ásamt borðum og bekkjum.
Falleg gönguleið liggur eftir hallinum frá tjaldsvæðinu suður að Furulundinum gamla, þaðan sem góðir stígar liggja til allra átta. Gatan sem kölluð hefur verið Þinggata, tengir tjaldsvæðið á Leirunum við þinghelgina sjálfa og svæðið þar í kring. Upp af tjaldsvæðinu rís eystri barmur Snókagjár en ofan af honum sér niður í djúpa gjána.
Tjaldsvæðið í Fögrubrekku er einungis ætlað tjöldum. Öll umferð bifreiða er bönnuð um svæðið.

