Hvannabrekka
Hvannabrekka
Lítið tjaldsvæði undir eystri gjábarmi Hvannagjár án aðstöðu. Gestir sem kjósa að dvelja á þessu tjaldsvæði verða að nýta sér snyrtingar í þjónustumiðstöðinni sem er spölkorn í burtu.
Afar skemmtilegt útivistarsvæði er í gjánni upp af tjaldsvæðinu, skjólgott og vel gróið. Syðst í Hvannagjá rennur lítill lækur, Leiralækur, nokkurn spöl eftir gjánni áður en hann fellur undir þjóðveginn niður í gjá.
Tjaldstæðið í Hvannabrekku er einungis ætlað tjöldum. Öll umferð bifreiða er bönnuð um svæðið.

