Nyrðri-leirar
Nyrðri-Leirar
Nokkuð stórt tjaldsvæði næst þjónustumiðstöðinni. Við tjaldsvæðið eru góðar snyrtingar og sturtur ásamt aðstöðu til þvotta og eldunar.
Notalegir hvammar eru á tjaldstæðinu við hraunjaðarinn að norðan og austanverðu þar sem finna má gott skjól. Rétt við tjaldsvæðið er göngustígur, Leiragata sem liggur að Hrauntúni, gömlu eyðibýli í Þingvallaskógi.
Tjaldsvæðið á Nyrðri-Leirum er öllum opið en þó einkum ætlað húsbílum, hjólhýsum og tjaldvögnum. Inni á því er heimilt að vera með bifreiðar svo það hentar einnig þeim sem kjósa að láta bíla sína standa við tjöldin.

