Syðri-leirar
Syðri-Leirar
Stærsta samfellda tjaldsvæðið í þjóðgarðinum. Þar er snyrtihús með vatnssalernum, vöskum og sturtum og aðstaða til eldunar. Einnig er aðstaða til að losa og hreinsa ferðasalerni.
Frá Syðri-Leirum liggur skemmtileg gönguleið, Sandhólastígur, að Skógarkoti. Stígurinn liggur meðal annars um sérkennilegar hraunmyndanir er nefnast Krókhólar. Frá Skógarkoti gefst síðan kostur á mörgum góðum gönguleiðum sem liggja víðsvegar um þjóðgarðinn.
Tjaldsvæðið á Syðri-Leirum er einkum ætlað húsbílum, hjólhýsum og stærri tjaldvögnum. Inni á því er heimilt að vera með bifreiðar svo að það er góður kostur fyrir þá sem kjósa að láta bifreiðar standa við tjöld sín að dvelja þar.

