Vatnskot
Vatnskot
Lítið tjaldsvæði á bökkum Þingvallavatns. Tjaldsvæðið í Vatnskoti er einungis ætlað tjöldum og er öll umferð bifreiða bönnuð um svæðið.
Tjaldað er á gömlum túnum sem áður tilheyrðu býlinu Vatnskoti. Á svæðinu er snyrtihús með vatnssalernum, vöskum og köldu rennandi vatni. Einnig borð og bekkir til afnota fyrir gesti.
Frá Vatnskoti liggja gönguleiðir svo að segja til allra átta. Þar má nefna Vatnskotsgötu í Skógarkot og Vatnskotsveg, gömlu leiðin á milli Vatnskots og Þingvalla. Þá eru ótal troðningar á vatnsbakkanum þar sem hólmar, tangar og vogar með fjölskrúðugu fuglalífi skreyta ströndina.
Á tjaldsvæðinu í Vatnskoti og í nágrenni þess er mikið af gömlum vegghleðslum og tóftarbrotum, óheimilt er að hrófla á nokkrun hátt við slíkum minjum.

