Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Veiðileyfi

Stangveiði

Veiðitímabilið er frá 1. maí til 15. september en veiðibann er í Ólafsdrætti frá og með 1. júlí til 1.september vegna hrygningar kuðungableikjunnar.

Seldur er einn dagur og kostar hann 1500 kr. fyrir manninn. Frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum (kaupa þarf að minnsta kosti eitt leyfi).

Veiðikortið sem gildir fyrir allt sumarið kostar 6000 krónur og er hægt að kaupa það öllum veiðiverslunum og víðar.

Elli og örorkulífeyrisþegar fá veiðileyfi fyrir sumarið endurgjaldslaust í þjónustumiðstöð.

Helstu veiðistaðir eru í Vatnskoti, Vörðuvík, Öfugsnáði, Nes og Nautatangi, Vatnsvik og Hallvik.

Einungis er heimilt að nota flugu, spún og maðk sem agn við veiðar í Þingvallavatni, innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. Notkun annars agns en hér greinir er alfarið óheimil. Stangaveiði má aðeins stunda frá landi og notkun hverskonar báta eða flota er bönnuð.  

 

 

 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf