Beina leið á efnisyfirlit þessarar síðu

Vöktun Þingvallavatns

Vöktun Þingvallavatns

Árið 2007 hófst vöktunarverkefni á lífríki og vatnsgæðum Þingvallavatns á vegum Umhverfisstofnunar, Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykjavíkur og Þjóðgarðsins á Þingvöllum. Vöktunin mun veita mikilvægar upplýsingar um grunnþætti í lífríki vatnsins sem er nauðsynlegur þáttur í verndun þess.


Markmið vöktunarinnar er að beita samfelldum langtíma mælingum svo unnt verði að kortleggja hugsanlegar Hólmar og súlurbreytingar á lífríki vatnsins vegna meintra álagsþátta s.s. nýtingar vatns, frárennslis, vatnsmiðlunar eða vegagerðar. Lífríki Þingvallavatns er fjölskrúðugt og sérstakt. Má nefna sem dæmi að fjölbreytni bleikju í vatninu er einstæð og tvær sérstæðar marflóartegundir fundust fyrst í lindum vatnsins. Helsti kostur samstarfs ofangreindra aðila um vöktun á lífríki Þingvallavatns er að betur verður fylgst með lykilþáttum lífríkis vatnsins og þannig fæst betri heildaryfirsýn yfir stöðu þess á hverjum tíma.

UrriðadansinnVöktuninni er skipt í þrjá meginverkþætti og um hvern verkþátt sér framkvæmdaraðili í samræmi við þar að lútandi samning. Verkþættir og framkvæmdaraðilar á öðru ári vöktunarinnar (sýnataka á árinu 2008) voru eftirfarandi:

1. Efna- og eðlisþættir í írennsli og útfalli. Jarðvísindastofnun Háskólans.
2. Lífríkis- og efna- og eðlisþættir í vatnsbol. Náttúrufræðistofa Kópavogs.
3. Fiskistofnar. Veiðimálastofnun.

Fyrir vöktunarverkefninu fer verkefnisstjórn sem skipuð er einum manni frá hverjum framkvæmdaraðila. Umhverfisstofnun er umsýsluaðili verkefnisins og sér um
fjárhagslega umsýslu verkefna sem beinast að vöktun Þingvallavatns. Verkefnisstjórn ræður einn verkefnisstjóra sem hefur faglega þekkingu á lífríki Þingvallavatns.

Hér má finna áfangaskýrslur verkefnisins:

Áfangaskýrsla Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir 2007:

Gagnaskyrsla_Natkop_2007

Áfangaskýrsla Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir 2008:

Gagnaskyrsla_Natkop_2008

Áfangaskýrsla 1 frá Veiðimálastofnun 2009:

Skra_0035915

Áfangaskýrsla Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir 2009:

Gagnaskyrsla_Natkop_2009

Áfangaskýrsla Náttúrufræðistofu Kópavogs fyrir 2010

Gagnaskýrsla 2010
 
 


 
 

 

Hliðarval


 

efnisyfirlit síðunnar


þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.

þetta vefsvæði er hannað af Gagarín ehf