Stapi er móbergsstapi vestan Arnarfells. Hann er um 200 x 100 metrar að flatarmáli, 30 metra hár og snýr samhliða landreksstefnunni. Kjarrgróður vex við rætur hans en toppurinn er mosagróinn. Klettabelti er á vesturhliðinni. Rétt sunnan Stapa er svonefnd Stapatjörn og milli hans og tjarnarinnar eru sagðar leifar af hreindýraskjóli frá um 1940 sem hefur ekki verið staðsett með vissu við þessi skrif.

Stapi í frumheimildum

Kristján Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi á Gjábakka og Mjóanesi, segir svo í örnefnaskrá Arnarfells frá 1982:

„Upp af túninu gengur brík norður á bergið, og austur af henni hallar landinu til austurs að Stapatjörn, sem er djúp tjörn. [...] Norðan við Stapatjörn er móbergshnjúkur, sem heitir Stapi. Framan í honum er tóft, sem notuð var sem skýli fyrir hreindýr, sem Matthías Einarsson hafði skömmu fyrir 1940.“

Pétur J. Jóhannsson frá Skógarkoti, síðar bóndi í Mjóanesi, merkti Stapa inn á útprentaða loftmynd á 9. áratug síðustu aldar við núverandi staðsetningu.

Heimildir

Tengd örnefni