10. júní 2012
Nemendur á Þingvöllum
Nemendur á Þingvöllum
Undanfarnar vikur hafa fjölmargir skólahópar komið tilÞingvalla og fengið leiðsögn. Í leiðsögninni er farið yfir helstu atriði sögu og náttúru Þingvalla og örnefni og kennileiti skýrð.
Í síðustu viku komu síðustu skólahóparnir en starfi lauk í flestum skólum í vikunni sem leið.
Flestir skólahópar koma á vorin en nokkuð er um heimsóknir að hausti. Hóparnir eru á öllum aldri frá leikskólahópum til elstu bekkja grunnskólans. Móttökurnar eru um klst að lengd og er skólum að kostnaðarlausu.