Þingvellir í dag
Veður
5,9°C N 8 m/s.
Gestir Þingvalla
3421
Talinn fjöldi í gær
43489
Talinn sl. 7 daga
Færð á vegum
361
Vallavegur - Greiðfært
Vefmyndavélar
Hak - Þingvallavatn
Hak - Skjaldbreiður
Lyngdalsheiði
Þingvallavegur
Mosfellsheiði
Viðburðir
Arkitektúr og Þingvellir
Jóhannes Þórðarson og Sigbjörn Kjartansson arkitektar Glámu - Kím fræða gesti um byggingar í nútíma og fortíð á Þingvöllum. Viðburðurinn er partur af menningarminjadögum Evrópu.Urriðadans í Öxará 2025
Laugardaginn 4. október klukkan 14:00 hefst hinn árlegi Urriðadans í umsjón Jóhannesar Sturlaugssonar.Fréttir
Haustdagskrá á Þingvöllum
Það er af nógu að taka í haust á Þingvöllum
Síðsumarsfagnaður starfsfólks þjóðgarðsins á Þingvöllum
Starfsfólk þjóðgarðsins sem hefur staðið vaktina með prýði þetta sumar ætlar að gera sér glaðan dag næstkomandi föstudag, 29. ágúst.
Rafmagnslaust á Þingvöllum
Rafmagnslaust verður við Þingvallavatn þann 23.7.2025 frá kl 22:00 til kl 2:30 þann 24.7.2025

Náttúra Þingvalla
Á undanförnum áratugum hafa rannsóknir leitt í ljós að Þingvellir eru náttúruundur á heimsvísu þar sem jarðsagan og vistkerfi Þingvallavatns mynda einstaka heild.Það eru gríðarleg verðmæti og náttúruundur að geta fylgst með þróun og myndum nýrra tegunda á einum stað eins og í Þingvallavatni. Þingvallasvæðið er hluti flekaskila Atlantshafshryggjarins sem liggja um Ísland. Þar má sjá afleiðingar gliðnunar jarðskorpunnar í gjám og sprungum svæðisins.

Saga þjóðgarðsins þingvalla
Saga Íslands og íslensku þjóðarinnar kemur hvergi betur fram á einum stað en á Þingvöllum við Öxará. Þar var Alþingi stofnað um árið 930 sem kom saman á Þingvöllum allt fram til ársins 1798. Meginviðburðir Íslandssögunnar hafa gerst þar og því skipa Þingvellir sérstakan sess í hugum allra Íslendinga. Þingvellir eru í dag friðlýstur helgistaður Íslendinga. Í lögum segir að hið friðlýsta land skuli ævinlega vera eign íslensku þjóðarinnar og undir vernd Alþingis.