Snorrabúð hefur nú þegar verið notuð fyrir ýmsa opinberar athafnir og móttökur eins og til að mynda 80 ára lýðveldisafmæli, opnun ljósmyndasýninga og móttökur erlendra þjóðhöfðingja.
Salurinn hefur einnig nýst til fyrirlestrarhalds af ýmsu tagi, oftar en ekki eitthvað sem tengist sögu og náttúru Þingvalla.
Þá hafa ýmsir hópar notað salinn til námskeiðshalds, hópavinnu, ýmis veisluhalds.
Til staðar eru 100 stólar sem hægt er að stilla upp eftir því hvernig hentar, 16 færanleg borð, tölva, skjávarpi og hljóðkerfi.
Hópar sem leigt hafa salinn hafa síðan nýtt lausan tíma til göngutúra og innblástur um Þingvelli en hægt er að fá landvörð til mis langrar móttöku eftir hentugleika.
Pantanir á salnum og fyrirspurnir er best að senda á thingvellir@thingvellir.is og torfi@thingvellir.is