Stangveiði í Þingvallavatni
Stangveiði í þjóðgarðinum á Þingvöllum er leyfð frá 20. apríl til 15. september ár hvert.
Veiðisvæðið er við norðanverða bakka Þingvallavatns og nær frá Leirutá á Lambhaga að Langatanga sunnan Arnarfells.
Í Þingvallavatni eru fjögur afbrigði af bleikju (kuðungableikja, sílableikja, murta og dvergbleikja) og urriðastofn. Urriðar yfir 60 cm geta innihaldið hátt magn kvikasilfurs og eru ekki ráðlagðir til neyslu, sérstaklega fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti.
Veiðisvæði þjóðgarðsins á Þingvöllum að undanskildu landi Kárastaða. Kortið fæst í pdf hér.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Veiðileyfi
Kaupa skal veiðileyfi áður en veiði hefst.
Dagsleyfi fyrir eina stöng kostar 2.500 kr. og er selt í þjónustumiðstöðinni á Leirum og á heimasíðu þjóðgarðsins. Handhafar Veiðikortsins hafa einnig aðgang að veiðisvæðinu. Þeir eru beðnir um að hafa Veiðikortið sýnilegt í framrúðu bílsins.
Elli- og örorkulífeyrisþegar fá veiðileyfi fyrir sumarið endurgjaldslaust í þjónustumiðstöðinni.
Börn veiða ókeypis í fylgd með fullorðnum, að því gefnu að a.m.k. eitt veiðileyfi sé keypt.
Veiðileyfið gildir ekki í landi Kárastaða.
Veiðitímabil og veiðarfæri
Stangveiði er leyfð frá landi eða hólmum við vatnsbakkann, en notkun báta eða flota er bönnuð. Önnur veiðarfæri en stangir (t.d. net) eru bönnuð.
Allur afli skal skráður í rafræna veiðibók á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar, hvort sem honum er landað eða sleppt.
Athuga skal hvort fiskur beri sérstök merki og fylgja neðangreindum leiðbeiningum.
Fluguveiðitímabil (20. apríl – 31. maí)
Aðeins má veiða á flugu með flugustöng og öllum urriða skal sleppt. Kaststangir eru bannaðar. Ekki er heimilt að nota maðk eða spún á þessu tímabili og önnur beita er stranglega bönnuð.
Almennt stangveiðitímabil (1. júní – 15. september)
Frá 1. júní til og með 15. september er heimilt að veiða með flugu, maðki eða spún. Önnur beita er stranglega bönnuð.
Bannsvæði
Veiðibann gildir í Ólafsdrætti frá 1. júlí til og með 31. ágúst vegna hrygningar bleikju. Mörk bannsvæðisins liggja frá Gjáarendahólmum í Hallviki að Einbúa í Arnarfelli.
Öll stangveiði innan svæðisins á þessu tímabili varðar kæru til lögreglu.
Öll veiði í Öxará og svæðinu sunnan óss hennar er bönnuð, þar með talið við vestanverðan Lambhaga.
Veiðistaðir
Vatnskot er einn vinsælasti veiðistaðurinn í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þar er tjaldsvæði einnig starfrækt á sumrin, sem er eingöngu ætlað tjöldum.
Í Vatnskoti er timburbryggja ætluð stangveiðifólki, salerni, flokkunartunnur, áningarbekkir og útivaskar til fiskverkunar. Þar er einnig lítil stofa með ýmsum hagnýtum upplýsingum um veiði í Þingvallavatni.
Aðrir helstu veiðistaðir við vatnið eru:
Sótthreinsun veiðibúnaðar
Skylt er að láta sótthreinsa innfluttan, notaðan stangveiðibúnað sem nota á í ferskvatni (líkt og stangir, hjól, öngla, spóna, flugur, vöðlur og háfa).
Æskilegt er að sótthreinsun fari fram fyrir innflutning til landsins og að vottorði sé framvísað.
Hægt er að fá sótthreinsun í þjónustumiðstöðinni á Leirum. Sótthreinsun kostar 5.000 kr.
Nánari umfjöllun má finna á heimasíðu Matvælastofnunar.
Veiðieftirlit
Landverðir sinna eftirliti á svæðinu dag og kvöld. Landverðir og annað starfsfólk á vegum þjóðgarðsins hefur heimild til að krefjast framvísunar veiðileyfis og kanna veiðibúnað og veiðiaðferðir.
Starfsfólki er heimilt að vísa fólki af svæðinu vegna brota á reglum. Brot á veiðireglum geta varðað kæru til lögreglu.
Merktir Þingvallaurriðar
Sumir urriðar í Þingvallavatni eru merktir í rannsóknarskyni. Slíkum fiskum skal sleppa aftur í vatnið.
Stangveiðifólk er beðið um að skrá eftirfarandi upplýsingar á merktum urriðum til að leggja rannsókninni lið:
-
Númer merkis
-
Lengd (cm)
-
Kyn (ef þekkt)
-
Veiðistað
-
Dagsetningu
-
Nafn veiðimanns ásamt símanúmeri og/eða netfangi
Upplýsingarnar skulu berast til Jóhannesar Sturlaugssonar hjá Laxfiskum ehf í síma 664-7080 eða í netfangið johannes@laxfiskar.is. Einnig er hægt að koma upplýsingunum til landvarða á svæðinu.
Dæmi um merkta urriða í Þingvallavatni.
Laxfiskar ehf
Umgengnisreglur
Þingvellir við Öxará eru friðlýstur helgistaður Íslendinga. Öllum er frjálst að fara um og dvelja á Þingvöllum, enda hlíti þeir reglum þjóðgarðsins um góða umgengni.
-
Allt lífríki þjóðgarðsins er friðað. Raskið hvergi mannvistar- eða náttúruminjum.
-
Hlífið gróðri, kveikið ekki elda.
-
Gangið þrifalega um landið, hendið ekki rusli á víðavangi.
-
Akið hvorki né leggið bifreiðum utan vega.
-
Hundar skulu ætíð hafðir í ól og hirða ber óhreinindi upp eftir þá.
-
Víða leynast gjár og sprungur á svæðinu, farið því ávallt varlega, gætið sérstaklega að börnum.
-
Gisting er aðeins leyfð á merktum tjaldsvæðum, virðið næturró og gangið hljóðlega um á milli 23:00 og 08:00.
-
Veiðileyfi eru seld í þjónustumiðstöð. Óheimilt er að leggja á bátum út frá landi þjóðgarðsins.
-
Leitið til landvarða á svæðinu eða í þjónustumiðstöð til aðstoðar eða upplýsinga.
-
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum er griðastaður. Ölvun veldur ónæði og spillir friði, ölvað fólk getur vænst þess að verða vikið af svæðinu.