Það verður ýmislegt á döfinni í sumar
Það verður ýmislegt á döfinni í sumar
Í september og október verða til staðar nokkri viðburðir á Þingvöllum.
Ýmist verður farið inn í hraun, gengið um þinghelgina eða dáðst að fiskinum í vatninu.
Gott er að hafa í huga að tímasetning og upphafsstaður viðburða er mismunandi.
20. september - Týndar leiðir á Þingvöllum: Hraunfólkið í Skógarkoti
Gangan hefst klukkan 13:00 við þjónustumiðstöðina á Leirum. Gengin verður 6,5 km leið, mælt er með góðum skóm og léttu nesti. Gunnar Grímsson leiðir gönguna sem verður fróðleg og litrík í haustlitunum.
27. september - Hvaða sögu segja fornleifar Þingvalla
Hefst klukkan 13:00 við gesastofu á Haki. Gengið verður niður í þinghelgi, að Þingvallakirkju og helsta búðasvæði. Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur þekkir flesta króka og koma í þinghaldi Alþingis til forna.
10. október - Urriðadans í Öxará
14:00 við Valhöll. Meðan við njótum á árbakkanum mun Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur standa út í vatni að venju og fræða okkur um lífsferil urriðans í Þingvallavatni.
Haustlitagangan í fyrra gekk framar vonum.