Týndar leiðir á Þingvöllum: Hraunfólkið í Skógarkoti
Nú haustar að á heiðum og húmar í skóg. Styttist því óðum í hina árlegu haustlitagöngu þjóðgarðsins á Þingvöllum, sem að þessu sinni verður haldin sunnudaginn 20. september klukkan 13:00.
Gunnar Grímsson, landvörður og fornleifafræðingur, leiðir gesti um tvær gamlar gönguleiðir í Þingvallaskógi sem hafa fyrir löngu fallið í gleymskunnar dá. Önnur þeirra ber ekkert nafn og liggur um örnefnið Skyrklif en hin kallast Miðhólagata. Hægt var að rekja leiðirnar í kjölfar umfangsmikillar kortlagningar sem stendur nú yfir í þjóðgarðinum.
Skógarkot í haustlitum
Haustið með öllum sínum litbrigðum mun leika við gesti næsta sunnudag
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Gestir setja sig í spor hraunfólksins í Þingvallasveit sem bjó í vatnslausu hrauni í námunda við hyldjúpar gjár.
Margar persónur munu koma við sögu, en sérstök áhersla verður lögð á börnin í Skógarkoti og minningar þeirra um horfinn heim. Stuðst verður við áður óbirtar heimildir sem varpa glænýju ljósi á staðinn.
Gönguferðin hefst fyrir framan þjónustumiðstöðina á Þingvöllum kl. 13:00. Gengið er til suðurs eftir ónefndri götu sem gæti verið ein elsta leiðin til Þingvalla; liggur hún um svokallað Skyrklif og fram hjá Kolsgjá sem getið er í Íslendingabók. Þaðan er ferðinni heitið austur að eyðibýlinu Skógarkoti. Boðið verður upp á léttar veitingar í rústum bæjarins og þar verður greint frá daglegu lífi í hjarta Þingvallahrauns. Að því loknu er gengið til baka um Nýju-Hrauntúnsgötu og Miðhólagötu.
Kort af gönguleiðinni
Hér má sjá kort af gönguleiðinni sem verður farin. Einnig er hægt að hlaða henni hér niður hér.
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
Gangan er hringleið, um sex og hálfur kílómetri að lengd og tekur um það bil þrjár klukkustundir. Hún er tiltölulega auðveld yfirferðar og hallalítil en götubotninn er víða ójafn. Best er að koma í góðum skóm og með nesti og vatn, enda er Þingvallahraun nær vatnslaust.
Gangan er partur af evrópskum menningarminjadögum sem Minjastofnun Íslands heldur utan um.
Hér koma nokkur hagnýt atriði sem gott er hafa í huga fyrir gönguna:
Gangan hefst á tjaldsvæðinu á Syðri-Leirum (64.27693, -21.09236). Hægt er að leggja í gjaldfrjáls bílastæði við akvegina og fyrir framan þjónustumiðstöðina, og frá þeim er örstutt ganga að upphafsreitnum. Salernisaðstaða er í þjónustumiðstöðinni.
Gangan sjálf er í kringum 6 kílómetrar á lengd og ekki sérstaklega krefjandi. Hafa skal þó í huga að gengið verður um ójafnar og botngrónar götur, og á einum tímapunkti er farið fram hjá djúpri gjá. Því er best að koma vel skóaður. Við göngum á rólegum hraða og reiknum með koma aftur til baka laust eftir kl. 16:00.
Samkvæmt spám verður hæglætisveður á sunnudaginn og lítil sem engin úrkoma. Við mælum þó með vatnsþéttum klæðnaði, þar sem við munum fá okkur sæti í rústum Skógarkotsbæjarins.
Gönguslóðarnir eru ógreinilegir á köflum og óstikaðir. Ef einhver þarf að snúa við er ráðlagt að styðjast við kort af gönguleiðinni á Wikiloc: https://www.wikiloc.com/hiking-trails/tyndar-leidir-a-thingvollum-hraunfolkid-i-skogarkoti-286130408
Við þökkum innilega fyrir þann gríðarlega áhuga sem þessum viðburði hefur verið sýndur og bjóðum ykkur öll velkomin til Þingvalla á sunnudaginn.