Hvaða sögu segja fornleifar Þingvalla?
Segja fornleifar sögu?
Það er af nógu að taka á þingstaðnum forna af hinum ýmsu fornleifum sem þar finnast
Þingvellir
Þingvellir til forna: þinghald, búseta og mannlíf
Í göngunni, sem leidd verður af Margréti Hrönn Hallmundsdóttur fornleifafræðingi, verður farið með gesti um Þingvelli. Fornleifar verða skoðaðar sem varpa ljósi á þinghald, búsetu og daglegt líf fólks á staðnum til forna.
Minjarnar geyma sögu þeirra sem dvöldu, störfuðu og bjuggu á Þingvöllum í gegnum aldirnar. Fjallað verður um það sem fornleifarnar hafa leitt í ljós, en einnig það sem enn er hulið.
Margrét Hrönn Hallmundsdóttir fornleifafræðingur hefur rannasakað og haldið utan um skráningu fornleifa á Þingvöllum í meira en áratug.
Gangan hefst klukkan 13:00 við gestastofu á Haki og tekur ríflega tvær klukkustundir.
Gangan er partur af evrópskum menningarminjadögum