Myrkraganga og draugasögur á Þingvöllum

Í fyrra komust færri að en vildu, helst vegna ófærðar innanbæjar í Reykjavík þó það væri flennifæri á Mosfellsheiðinni.

Við gerum því aðra tilraun í ár sem Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur mun leiða myrkragöngu á Þingvöllum.

Á leiðinni mun Dagrún segja aðeins frá draugum og þeim ólíku gerðum drauga sem finnast á Íslandi, uppvakningum, afturgöngum og útburðum, auk þess að segja nokkrar vel valdar íslenskar draugasögur.
Þá verður einnig farið yfir ýmis praktísk atriði, eins og hvernig má þekkja drauga sem fólk mætir á förnum vegi, vekja þá upp og losna undan ásóknum þeirra. Öll velkomin, sem þora!

Viðburðurinn hefst við gestastofuna á Haki klukkan 19:00 en þaðan verður gengið í myrkrinu niður Almannagjá og að Þingvallakirkju. Gott getur verið að hafa með sér höfuðljós eða annan ljósgjafa ef myrkrkið sækir of mikið á.

Viðburðurinn er öllum opinn og ókeypis. Ekki er rukkað í bílastæði á Þingvöllum eftir 18:00. 
Myrkur og meinleiðir skuggar í Almannagjá