Rannsókn á birkiskógum Þingvalla
Ískjarni tekinn úr tjörn. Frost hafði verið nóg til að halda öllum ofan yfirborðs.
Vísindamenn, Scott J. Riddel og Wesley Randall Farnsworth, frá Háskóla Íslands komu til þjóðgarðsins á Þingvöllum í gær. Rannsókn þeirra er hluti af verkefninu Íslenskir birkiskógar (Birchwoods of Iceland) sem er styrkt af RANNÍS. Gunnar Grímsson starfsmaður þjóðgarðsins veitti þeim liðsinni á vettvangi.
Setlagakjarnar voru teknir úr lítilli tjörn ofan Almannagjár, skammt frá Bakkarétt. Reynt verður að greina frjókorn í setlögunum til að varpa frekara ljósi á gróðurfar fyrri alda, sem og gömul gjóskulög til að ákvarða tímaröðina.
Tjörn þessi er ekki langt frá eyðibýlinu Grímastöðum (eða Grímsstöðum), sem er oft talið vera býli Gríms hins litla úr Harðar sögu og Hólmverja. Munu rannsóknirnar sýna að svæðið, sem nú er skóglaust, hafi áður verið innan í skógi? Var Þingvallaskógur hluti af mun umfangsmeira skóglendi á fyrri tímum?
Scott og Wesley vísindamenn frá HÍ rýna ofan í borholuna.
Þingvellir
Það var frosinn og fallegur klakakjarni sem veiddur var upp.
Þingvellir