Til minningar um Davíð Oddsson

Davíð Oddsson á Þingvöllum

Davíð stendur hér við Hakið á Þingvöllum.

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, lést á heimili sínu 1.mars 78 ára að aldri.

Davíð Oddsson var borgarstjóri 1982-1991og  forsætisráðherra frá 1991 til 2004.  Sem forsætisráðherra varði hann mörgum stundum í þjóðgarðinum á Þingvöllum í Þingvallabænum. Hvort sem var í opinberum móttökum með erlenda gesti eða til að sækja sér innblástur og orku í sögu og náttúru Þingvalla. 

Forsætisráðherrar á hverjum tíma hafa haft aðstöðu í Þingvöllum og í Þingvallabænum svo til frá stofnun þjóðgarðsins árið 1930. 

Hér má sjá nokkrar myndir af Davíð sem teknar voru af Gunnar G. Vigfússon ljósmyndara sem tók margar myndir af móttökum erlendra gesta á Þingvöllum.

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum sendir fjölskyldu Davíðs innilegustu samúðarkveðjur
Setning Alþingis

Davíð stjórnar hér þreföldu húrrahrópi við setningu Alþingis á 50 ára lýðveldishátíð Íslands á Þingvöllum árið 1994. 

Davíð og frú Vigdís forseti

Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands leiddi margan gestinn um Þingvöll. Hér heilsar hún Davíði Oddssyni við Þingvallabæinn á 50 ára lýðveldisafmæli Íslands. Með í för eru Margrét Þórhildur danadrottning.

Farið út í móa með þjóðarleiðtoga

Davíð út í móa á Þingvöllum með Simon Peres utanríkisráðherra Íseael.

Ljósmyndaranum fagnað?

Davíð Oddsson virðist hér fagna veru ljósmyndarans Gunnars Geirs Vigfússonar í opinberri heimsókn Janez Drnovšek forsætisráðherra Slóveníu árið 2002.

Votviðrasamt á Þingvöllum

Opinber heimsókn Poul Nyrup forsætisráðherra Danmerkur til Íslands. Á myndinni (frá vinstri til hægri) eru Davíð Oddsson, Paul Nyrup Rasmussen, Lone Dybkjær og Ástríður Thorarensen.

Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen á Þingvöllum