Gönguskíðabraut 10.03.2026

Gönguskíðabraut var troðin seinnipartinn 10.03. Smá krapi var á leiðinni sem gæti frosið nú yfir nóttina. Mögulega fellur smá fönn í nótt en annars má búast við smá klaka í brautinni.

Leiðin er einbreið enda býður breidd göngustíga ekki upp á annað. Einstaka skaflar geta myndast á brautinni og gott er að fara varlega í og við gjár.
Upphafspunktur er við Vallakrók gegnt Furulundi eða við bílastæði merkt P2 neðan við Öxarárfoss. Leið liggur austur yfir Vallagjá og áfram yfir veg 361 í átt að Skógarkoti (2 km). Fara þarf yfir Vallaveg (361) og gott er að huga að umferð.
Þegar komið er að Skógarkoti kvíslast leiðin: 

   1. Hrauntún (3 km). Hægt er að fara norður í átt að Hrauntúni. Leiðin er um 3 km að lengd. Á einum stað er farið yfir þjóðveg 36 og gott er að hafa varann á vegna aðvífandi umferðar. Þá er haldið áfram eftir brautinni að eyðibýlinu Hrauntúni. Hingað nær troðin leiðin ei lengra og hægt er snúa við eftir að náttúrunnar hefur verið notið. 

2. Tjarnir (2 km). Haldið er austur að Tjörnum sem eru rétt við norðausturhluta Þingvallavatns. Frá Tjörnum er mælt með því að fara sömu leið til baka. Ekki hafa verið troðin spor meðfram Vallavegi (361) en þó láta sumir sig hafa það og fara þá eftir bílförum sem þar eru, fram hjá Silfru og þaðan áleiðis að Vallakróki. 
Hægt er að nálgast kort hér í jpg formi og hér í pdf formi. Gönguskíðabrautirnar eru blálitaðar.
Góða skemmtun.
Leiðin hefst við Vallakrók

Rétt undir Öxarárfossi er trjálundur, þar nálægt er Vallarkrókur sem hugsaður er sem upphafspunktur gönguleiðinnar.