Hjólakeppni Tinds 14. júní

Hjólreiðafélagið Tindur heldur götuhjólamót á Þingvöllum þann 14.júní.  Mótið er fyrsta götuhjólamótið í bikarmótaröð Hjólreiðasambands Íslands.

Skráðir til leiks eru 56 keppendur í flestum flokkum, þ.e frá undir 15 ára og upp í Elite flokk, sem er efsta stig keppenda.

Brautin liggur í hring í Þingvallagarðinum, sem er um 17km langur en keppendur fara frá einum upp í sex hringi eftir flokkum.

Flest af fremsta hjólreiðafólki landsins er skráð til leiks og er búist við spennandi keppni. 

Keppnin hefst klukkan 17:00 og er rásmark við tjaldstæðið Syðri-Leirar. 

Búast má við umferðarstýringu á völdum punktum og eru vegfarendur beðniru um að virða þær.

Hringurinn sem hjólað er
Rás og endamark